
En svo giftist hún Hulda vinkona honum Stjána sínum með pompi og prakt síðustu helgina í júlí. Athöfnin var í Þingeyrarkirkju og var stórfjölskyldan öll þar saman komin og veðrið lék við þau allan tíman. Þetta var yndislega fallegt brúðkaup eftir myndum að dæma og ég óska þeim innilega til hamingju með þennan mikla áfanga. Skál Hulda mín
Ummmm kakan er girnileg og fólkið á myndinni glæsilegt ekki satt?
Á kirkjtröppunum en Huldu virðist samt vera hálf kalt henni hlýnaði strax af kampavíninu!
Skál elskurnar mínar, megi þið lengi lifa, húrra, húrra, húrra, húrrrrraa!!!
