miðvikudagur, júlí 05, 2006

Danirnir mínir komnir heim

Í gær var síðan tekin stefnan á Hellisand í grenjandi roki og rigningu. Erindið var að heimsækja Siggu og barnabörnin sem voru komin í heimsókn frá Danmörku. Sverrir verður að vinna í Reykjavík hjá ÍAV og afgangurinn af fjölskyldunni dvelur á Sandi og svo hittist fjölskyldan á helgum. Það var ólýsanlega gaman að hitta þau, Lovísa mín hafði stækkað heilmikið síðan í október og Victor Máni sem var rétt rúmlega mánaðar gamall þegar ég var í heimsókn í Horsens var orðinn risastór. Það er verst að geta ekki verið með þeim meira en raun ber vitni en svona er lífið. Þetta er Lovísa Rún sem fagnaði ömmu sinni með því að hlaupa upp um hálsinn á henni
Elísa Kristín og Íris vinkona hennar að fara að veiða í rigningunni
Og hér er Victor Máni með mömmu sinni
Lovísa á afmæli á morgun og fékk pakka frá ömmu sinni

Á morgun leggjum við Friðrik svo land undir fót og byrjum í Kofanum. Foreldrar hans eiga demantsbrúðkaup og ætla Sólrún og Óli að sækja þau og fara með þau austur þar sem við ætlum að eyða deginum saman. Sævar bróðir Friðriks og kona hans koma líka og ætlum við að hafa með okkur veitingar og borða saman í tilefni dagsins. Við ætlum síðan að gista og halda síðan á Egilstaði og þaðan eitthvað út í óvissuna. Verðum svo á ættarmótinu mikla í Laxárdalnum (í Þingeyjarsýslunni) aðra helgi og svo komum við heim aftur. Hvað þá verður veit ég ekki enn en eitt er víst að ég er komin í bloggfrí í bili. Húúúúrrraaaaaaa! Posted by Picasa